Jötuninn í Lómagnúpi

Jötuninn í Lómagnúpi Jötuninn í Lómagnúpi er landvættur Suðurlands. Hann hefur fylgst með mönnum byggja landið og lenda í alls konar hrakningum í gegnum

Jötuninn í Lómagnúpi

Lómagnúpur
Lómagnúpur


Jötuninn stendur með járnstaf í hendi,
jafnan við Lómagnúp.
Kallar hann mig, kallar hann þig,
kuldaleg rödd og djúp.

Svo segir í ljóði Jóns Helgasonar, Áföngum, og vísar til þeirra atburða í Njálu þegar Flosi fékk sér blund undir hlíðum Lómagnúps á leið sinni til Bergþórshvols í Landeyjum þar sem hann vildi hefna Höskuldar Þráinssonar. Þeir menn sem Jötuninn nefndi voru allir feigir en þeir sem hann nefndi ekki, en voru með í för, lifðu af. Jötuninn er þarna forspár og vitur. Hann hefur staðið með járnstafinn í Lómagnúpi allt frá upphafi Íslandsbyggðar og er landvættur Suðurlands. Hann hefur fylgst með mönnum byggja landið og lenda í allskonar hrakningum í gegnum tíðina. Hann sér yfir allar sveitir og út á hafið, fylgist með öllu. Við hittum jötuninn að máli á björtum desemberdegi og báðum hann að segja okkur frá minnisstæðum atburðum. Fyrsta sem hann rifjaði upp var þegar gullskipið strandaði á Skeiðarársandi. Gefum jötninum í Lómagnúpi orðið.

Skjaldarmerki Íslands                                                                             

 

 

Lilja Magnúsdóttir skrifaði sögurnar.

Gunnar Jónsson las sögurnar.


Friður og frumkraftar | kt.411009-2620 |  Klausturvegi 2  |  880 Kirkjubæjarklaustur  |  Sími +354 4874620  | visitklaustur@visitklaustur.is

Vatnajökulsþjóðgarður        Katla Geopark        Kirkjubæjarstofa     Upplifðu Suðurland      Inspired by Iceland     Ferðamálastofa   

Video

Hér eru myndbönd frá Suðurlandi


View our videos

Veður

Kirkjubæjarklaustur

Fim. kl. 00:00
m/s
°C

Meira á vedur.is

Póstlisti

Skráði ykkur á póstlistann til að fá fréttabréfið í pósti

Myndir

Miðlar

Þú getur fylgt okkur á Facebook

Facebook